Örfáir stjórnmálamenn hafa verið haldnir þeirri þráhyggju um árabil að flytja málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Það er í raun orðið svo langt síðan að þessi sorgarsaga hófst að þær fáu þjóðir sem fetuðu þessa braut sjá eftir því og allt aðra áherslur eru í málaflokki fatlaðra nú en voru þá. Samt er haldið áfram eins og engin þróun hafi verið í málaflokki fatlaðra í yfir áratug.
Það vekur því sérstaka athygli þegar sömu stjórnmálamenn fara fyrir breytingum á stjórnskipunarlögum þar sem gera á landið að einu kjördæmi.
Í greinargerð með því frumvarpi eru sérstaklega tilgreind fjögur atriði um kosti þess að landið sé eitt kjördæmi.
- Fullkominn jöfnuður næst milli kjósenda og misvægi atkvæða er ekki lengur til staðar.
- Stjórnmálaflokkar fá þann þingmannafjölda sem atkvæði þeim greidd segja til um.
- Þingmenn hafa heildarhagsmuni að leiðarljósi í störfum sínum en ekki þröng kjördæmissjónarmið.
- Kosningakerfið er einfalt og auðskilið.
Með því að færa málaflokk fatlaðra til sveitarfélaga þá er að sönnu verið að brjóta alvarlega á þeim fjórum megin atriðum sem mikilvæg þykja er kemur að vægi atkvæða. Með þessari breytingu sem núverandi og einn fyrrverandi félagsmálaráðherra hafa lagt svo mikla áherslu á þá er verið að:
- Tryggja ójöfnuð fatlaðra, enda verður réttur fatlaðra og þjónusta mismunandi eftir sveitarfélögum, þetta er því miður staðreynd þar sem þetta hefur verið gert erlendis.
- Fatlaður einstaklingur fær ekki í öllum tilvikum þann stuðning sem samfélagið ætlar honum með þessari breytingu, réttur mismunandi eftir sveitarfélögum.
- Sveitarstjórnarmenn munu frekar horfa á hagsmuni síns sveitarfélags, en heildar hagsmuni fatlaðra einstaklinga.
- Réttur fatlaðra verður flóknari en nú er auk þess sem réttur í einu sveitarfélagi er ekki réttur í öðru sveitarfélagi.
Af hverju leggur félagsmálaráðherra sem meðflutningsmaður frumvarps um breytta stjórnskipan áherslu á sama rétt til allra kosningabærra manna, en þegar kemur að rétti fatlaðra þá á að búta hann niður á tæplega 80 sveitarfélög og það hjá 300 þúsund manna þjóð sem í ýmsum löndum myndi teljast vera eitt frekar lítið sveitarfélag?