Inngildandi samfélag er ekki bara einstaklingum með Downs heilkenni mikilvæg, hún er öllum hópum samfélagsins mikilvæg vegna þess að;
Október er alþjóðlegur mánuður vitundarvakningar Downs heilkennis. Árangur vitundarvakningar og réttindabaráttu í tengslum við Downs heilkennið og réttindarbaráttu hagsmunasamtaka fatlaðs fólks er okkur öllum mikilvæg. Árangur þeirrar baráttu skilar okkur betra samfélagi, samfélagi inngildingar.
- Þar er fósturgreining nýtt til stuðnings og fræðslu í stað þess að leita uppi einn ákveðinn hóp með þeim afleiðingum að börn með Downs heilkenni fæðast nánast ekki lengur.
- Þar er leikskóli staður þar sem börn fá að vera, upplifa og kynnast án staðalmynda og skoðana okkar sem eldri erum.
- Þar er grunnskóli skóli allra nemenda þar sem enginn fær það hlutskipti að þurfa að „laga sig að“.
- Þar er félags- og íþróttastarf aðgengilegt öllum börnum og unglingum. Þar fær enginn þau skilaboð að hans þáttaka sé „ekki fjármögnuð“.
- Þar er framhaldsskóli, skóli fjölbreyttra tækifæra þar sem allir nemendur geta valið sér nám út frá áhugasviði, hæfni og námsmarkmiðum.
- Þar er háskólanám raunhæfur, aðgengilegur og spennandi kostur fyrir alla verðandi háskólanema.
- Þar er aðgengi einstaklinga með skerta starfsgetu að vinnumarkaði eðlilegur þáttur í starfsemi ráðningastofa, ekki „úrræði“ á vegum Vinnumálastofnunar.
- Þar eru einstaklingar með skerta starfsgetu launþegar sem hafa framfærslutryggingu sem opnar möguleika til tekna, tækifæra og samfélagsþátttöku í stað þess að vera bótaþegar sem eru bundnir í báða fætur.
- Þar eru samfélags- og kerfisbreytingar til að bæta lífsgæði, aðgengi og öryggi allra. Ekki orsök útilokunar og aðgreiningar.
- Þar er virðing borin fyrir viðhorfum og skoðunum allra einstaklinga og tillit til þeirra tekið.
- Þar er ekki valkvætt hvort fara eigi að lögum þegar kemur að lögbundnum rétti ákveðins hóps einstaklinga.
Það á að vera sameiginlegt hagsmunamál okkar allra að íslenskt samfélag sé inngildandi samfélag.
Höfundur er formaður Félags áhugafólks um Downs heilkennið